Tarifa er lítill og notalegur fiskibær sem stendur á syðsta tanga Evrópu við Gíbraltarsund, á mótum Atlants- og Miðjarðarhafs. Við blasir Afríka, enda aðeins 14 kílómetrar sem skilja heimsálfurnar að. Hraðskreiðar ferjur sigla reglulega á milli þeirra; á milli Tarifa og Tanger í Marokkó. Stutt er til þekktra borga í Andalúsíu eins og t.d. Sevilla, Cadiz, Córdoba og Marbella.

Saga bæjarins nær langt aftur í aldir, eða allt til  tíma Föníkýju og Karþagó. Síðar komu Rómverjar og arabar og gætir áhrifa þeirra enn víða í bænum og í næsta umhverfi. Bærinn Tarifa, sem er enn lítt þekktur meðal erlendra ferðamanna, hefur viðhaldið upprunalegum sjarma gamla bæjarhlutans, en þar má m.a. finna lítil og falleg hótel, veitingastaði og líflegt götulíf.

Á Tarifaskaga er mikil náttúrufegurð og til að mynda eru þar tveir þjóðgarðar. Þeir eru Alcornocales þjóðgarðurinn, þar sem finna má síðasta Miðjarðarhafsskóginn og þjóðgarðurinn Litoral de Estrecho, sem er gamall sjávarbotn Gíbraltarsunds. Þar er lögð áhersla á rannsóknir og varðveislu sjávarlífvera. Sterkir straumar Miðjarðar- og Atlantshafsins mætast í Gíbraltarsundi. Öllu því umróti fylgir mikið dýralíf í lofti og legi, enda er svæðið rómað meðal fugla- og hvalaskoðara og einnig kafara. Sjá nánar í tenglar.

Tarifa er sennilega þekktast fyrir að vera „wind- og kitesurf“ paradís, sem er ekki að undra því þar eru einhverjar bestu og lengstu strendur Spánar og nægur vindur til að fylla segl sjóbrettanna.Einnig er loftslagið eins og best verður á kosið, með hlýjum og þægilegum sumrum og mildum vetrum og því hægt að "sörfa" allan ársins hring í "La Mecca del surf". Sjá nánar í tenglar.

 

 

Skrifstofutími

Skrifstofa skólans er opin virka daga frá 10-14 á spænskum tíma.
Hafðu samband við okkur á Skype:

My status

Heimilisfang

San Rosendo, nr. 12, Tarifa, 11380 Cádiz, Spain.
Sími: 0034 - 956 62 75 48, 
info@alandalustarifa.com

Sitemap
Disclaimer