Í Tarifa eru miklir möguleikar til afþreyingar. Bærinn sjálfur er skemmtilegur og götulíf fjölskrúðugt. En einnig er mikið úrval af alls konar námskeiðum og skoðunarferðum. Sem dæmi má nefna kite-og windsurf, www.tarifakite.com, www.artofsurfing.com, www.hotsticktarifa.com, klettaklifur, köfun og útreiðar, www.vientoyroca.com, www.girasol-adventure.com, www.buceotarifa.com. Mikið er af hvölum á Gíbraltarsundi og er hvalaskoðun mjög vinsæl, enda 90% líkur á því að sjá mikið af hvölum í hverri skoðunarferð. Sjá www.turmares.com. Þá eru dagsferðir yfir til Tanger í Marakkó einnig vinsælar, en þangað eru einungis um 40 mínútna sigling með hraðskreyðum bátum.
Enginn má missa af "folklore festivalinu" í ágúst; þá klæðast heimamenn andalúsískum þjóðbúningum og hundruð prúðbúinna knapa ríða glæsihestum í gegnum bæinn.
Og hvernig væri að nota tækifærið til að læra að dansa sevillanas og flamenco eða kynnast betur hinni margrómuðu spænsku matargerð og spænskum vínum.
Ekki má gleyma að nefna hina einstöku náttúru Tarifaskagans með sínar óspilltu og víðfemu strendur. Þar er tilvalið að vera á fullu í sportinu eða bara slappa af með fjölskyldu og/eða vinum.
Við hjá Al Andalus munum með ánægju aðstoða við að finna afþreyingu við ykkar hæfi.
Festivöl í Tarifa og nágrenni.
Í Tarifa og nágrenni er mikið um að vera allt árið um kring, eins og hin fjölmörgu festivöl gefa til kynna. Meðal þeirra helstu má nefna carnival í febrúar og páskavikuna sem enginn má fara á mis við. Ef þið hafið ekki upplifað spænska páskahátíð er þetta tilvalið tækifæri til að kynnast menningu og siðum landsins.
Í byrjun maí er haldið stórkostlegt hestafestival í nágrannabænum Jerez, en þá skarta heimamenn og hestar sínu fegursta.
Fyrstu tvær vikurnar í ágúst fer fram folklore festival í Tarifa; heimamenn spila og syngja og skemmta sér eins og þeim einum er lagið.
Aðalhátíðin í Tarifa "Fiestas de la Virgen de la Luz", til heiðurs heilagri meyju ljóssins á sér stað í byrjun september. Hátíðin stendur linnulaust yfir í eina viku og allir bæjarbúar taka þátt í henni. “La virgen” er sómi sýndur í formi matar, drykkjar og annarra veisluhalda. Almenningur klæðist þjóðbúningum, en uppáklæddir knapar og fagurlega skreyttir gæðingar þeirra fara með aðalhlutverkið í þessum miklu hátíðarhöldum.
Til að finna frekari upplýsingar, sjá Tenglar