|
|
|
|
Al Andalus verður nemendum hjálplegur við að finna húsnæði af ýmsu tagi í Tarifa, allt eftir óskum og efnahag viðkomandi. Yfirleitt er ekki vandkvæðum bundið að finna gistirými í bænum nema yfir hásumarið, en þá er nauðsynlegt að hafa pantað gistingu með góðum fyrirvara. Þó þarf að hafa í huga að verðmismunurinn er mikill eftir árstíð og er verð á gistirými oft tvöfalt hærra yfir sumartímann. Flest hótel og gistiheimili skipta árinu í þrennt og er júni til september yfirleitt talinn til háannatíma. Það sama gildir um leigu á íbúðum.
Herbergi hjá spænskum fjölskyldum. Gisting hjá fjölskyldum tryggir ákveðið eftirlit með yngri nemendum og einnig innsýn og tengingu við tungumálið og spænska lifnaðarhætti sem ekki fæst með öðrum hætti. Fjölskyldurnar eru vandlega valdar af skólanum með það í huga að dvöl nemandans verði sem ánægjulegust.
|
Euro / per room
|
2 weeks
|
3 weeks
|
4 weeks
|
5 weeks
|
6 + weeks
|
|
Single room / half board
|
400,--
|
580--
|
760,--
|
940--
|
+170 ,-- per week
|
|
Double room / half board
|
590,--
|
865,--
|
1140.--
|
1415,--
|
+270,-- per week
|
+ 10 % í Júli og ágúst.
Herbergi á efri hæð skólans eða herbergi í 2-5 herbergja íbúð. Á efri hæð skólans, sem er í hjarta Tarifa og steinsnar frá ströndinni, eru fimm rúmgóð eins og tveggja manna svefnherbergi, ásamt setustofu og þakverönd með miklu útsýni yfir bæinn og Gíbraltarsund, allt yfir til norðurstrandar Afríku. Tvö baðherbergi og eldhús og þvottaaðstaða eru á hæðinni.
|
Weeks
|
1 week
|
2 weeks
|
3 weeks
|
4 weeks
|
5-16 weeks per/w
|
|
Single room
|
115,--
|
212,--
|
295,--
|
375,--
|
+85,--
|
|
Double room
|
145,--
|
260,--
|
363,--
|
470,--
|
+120,--
|
|
Single room
July / August
|
170,--
|
285,--
|
427,--
|
570,--
|
+140,--
|
|
Double room
July / August
|
210,--
|
380,--
|
570,--
|
760,--
|
+180,--
|
Cleaning fee per person is 20 euros
Deposit per person is 50 euros
Vika miðast við 6 nætur og 7 daga.
Gistiheimili. Fjölmörg hugguleg lítil gistihús eru í miðbæ Tarífa. Skólinn er nemendum innanhandar við að útvega slíka gistingu sé þess óskað. Hafa verður í huga að panta verður herbergi yfir háannatímann, júlí og ágúst, með góðum fyrirvara. Verð frá 40- 80 evrur nóttin fyrir tveggjamannaherbergi eftir árstíma.
Íbúðir í gamla bænum eða nálægt ströndinni. Fyrir fjölskyldur eða hópa getur það verið góður kostur að leigja íbúð á skemmtilegum stað í bænum. Skólinn getur haft milligöngu við að útvega slíkar íbúðir, en þær verður að panta með góðum fyrirvara. Íbúðir eru fánlegar af öllum stærðum og gerðum og í öllum verðflokkum.
Smáhýsi á ströndinni (camping). Á ströndinni rétt utan við bæinn eru nokkrir gróðursælir og vel útbúnir "campings" með veitingahúsum, matvöruverslunum og öðru tilheyrandi. Þar eru smáhýsi búin bað- og eldhúsaðstöðu, sem hægt er að leigja, en einnig er hægt að búa í eigin hjólhýsi eða jafnvel tjalda. Svæðið sem er fjölsótt af fjölskyldufólki og ungmennum frá öllum heimshornum er tilvalið fyrir unnendur strandlífs og vindsurfs. Strætisvagnar ganga í bæinn á klukkutíma fresti frá morgni og fram eftir nóttu. Verð fyrir bungalow fyrir 4 persónur , er frá 58 evrum nóttin. Sjá nánar; www.campingjdunas.com, www.campingtp.com, www.campingtarifa.es
Mikið tilboð af gistirými er í boði í Tarifa, frá campings til lúxus íbúða og allt þar á milli. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Nánari upplýsingar um gistirými má finna á heimasíðum; www.gotarifa.com, www.costasur.com
|
|