Í  spænskuskólanum Al Andalus í Tarifa er mikil áhersla lögð á að nemandinn komist í snertingu við spænskan menningarheim,  sem við hjá Al Andalus teljum að sé stór hluti af tungumálanámi. Í því skyni bjóðum við  uppá mismunandi menningartengda  starfsemi á vegum skólans, sem dæmi má nefna; dans, kynningu á spænskri myndlist, matargerð og  bókmenntum, kvikmyndakvöld  jafnframt kynnisferðum  um nágrenni Tarifa , einnig  alls konar sporti og útiveru.

 

Námskeiðin okkar henta öllum þeim sem hafa áhuga að læra spænsku í sínu rétta umhverfi, án tillits til aldurs, þjóðernis eða spænskukunnáttu. Golfunnendur geta líka fundið eitthvað við sitt hæfi, það eru frábærir golvellir í ca. 40 km fjarlægð frá Tarifa.

 

Al Andalus býður upp á spænskunámskeið frá mars til desember. Námskeiðin byrja á tveggja vikna fresti og skiptast í mismunandi stig samkvæmt hinum Evrópska lagaramma fyrir tungumálanám. Nemendur taka inntökupróf við komu til að hægt sé koma nemanda í réttan áfanga strax í upphafi námskeiðs.


Kennslan fer fram á morgnana frá kl. 9 til 13.30 alla virka daga og byggist þannig upp; Fyrri hluti tímans er bóklegur þar sem unnið er með texta, málfræði og skriflegar æfingar. Eftir hlé er síðan lögð áhersla á talað mál, málskilning og orðaforða jafnt innan sem utan skólaveggja. Þannig lærir nemandinn að tjá sig og tengja námið við hið daglega amstur og komast  þannig í snertingu við Spánverja og spænska menningu. Einnig er boðið upp á "intensive" kúrsa fyrir þá sem vilja skerpa á náminu. Á þessum námskeiðum bætist einn einkatími við grunnnámið á degi hverjum.



Valnámskeið;

  • Flamenco
  • Latneskir dansar; Salsa og Tango, afrískir dansar
  • Spænskar bókmenntir
  • Spænskar / latneskar bókmenntir og kvikmyndir
  • Spænskur gítar
  • Spænsk nútímalist
  • Spænsk matargerð
  • Spænska og sport (Kitesurf, windsurf, köfun, tennis, klifur, gönguferðir og hjólreiðaferðir)

Ath. Flest þessara námskeiða verða aðeins haldin ef næg þátttaka næst.

 

Kennsluaðferðir

Kennsluaðferðir okkar taka á aðal grundvallaratriðum tungumálanáms sem eru; tjáning, skilningur  á töluðu og rituðu máli og hið  menngingarlega og félagslega umhverfi. Grundvöllur kennsluaðferða okkar byggist á mikilvægri þekkingu og reynslu kennara okkar af ólíkum  kennslufræðilegum  einingum sem við teljum mikilvægar til að ná góðum árangri í kennslu. Að sjálsögðu notum við líka nýjustu kennslubækur og gögn frá helstu bókaforlögum sem sérhæfa sig í spænskukennslu fyrir útlendinga. Markmið  okkar er að létta nemendum námið með því að gera það  skemmtilegt og krefjandi á sama tíma. Við leggjum áherlsu á að nemandinn læri að tjá sig og að hann tengist umhverfi og heimamönnum meðan á dvöl hans stendur. Hjá Al Andalus eru fáir í hóp, aldrei fleiri en 10 og getum við því boðið uppá einstaklingsmiðaða kennslu. Við erum með menntaða og reynda kennara sem er umhugað um að veita góða kennslu og að dvölin verði gagnleg og ánægjuleg og eins og  frekast verður á kosið.


Samsett spænskunámskeið

Við hjá Al Andalus bjóðum einnig upp á samsett námskeið þar sem  nemandinn getur valið á milli nokkurra námskeiða meðfram spænskunáminu. Þarna hefur hann  tækifæri til að búa til sinn eigin pakka með hliðsjón af áhugamálum.


Two Weeks Spanish Standard Course & Kitesurf & Accommodation.

Two Weeks Spanish Standard Course & Windsurf & Accommodation.

Two Weeks Spanish Standard Course, Spanish, Cooking & Accommodation.

Two Weeks Spanish Standard Courses, Spanish And Dancing Flamenco, Salsa, Tango & Accommodation.


Two Weeks Spanish Standard Course & Outdoor Activities & Accommodation.


Kynnið ykkur frábæra hópafslætti - hafðu samband við okkur í dag!

 

 

Skrifstofutími

Skrifstofa skólans er opin virka daga frá 10-14 á spænskum tíma.
Hafðu samband við okkur á Skype:

My status

Heimilisfang

San Rosendo, nr. 12, Tarifa, 11380 Cádiz, Spain.
Sími: 0034 - 956 62 75 48, 
info@alandalustarifa.com

Sitemap
Disclaimer