Spænskunámskeiðin eru til tveggja og fjögurra vikna í senn og skiptast upp í grunnstig, miðstig og efsta stig fyrir lengra komna. Hópkennslan fer fram á morgnana og nemendur eiga því frí seinni part dags til að sinna áhugamálum sínum, enda mikið um að vera á svæðinu. Spænskukennslan miðast við fjóra tíma á dag, frá kl. 9-13.30 alla virka daga en einnig er boðið upp á "intensive" kúrsa fyrir þá sem vilja skerpa á náminu. Þá er boðið uppá einkakennslu.
Við hjá Al Andalus bjóðum einnig upp á samsett námskeið þar sem nemandinn getur valið á milli nokkurra námskeiða meðfram spænskunáminu. Þarna hefur hann tækifæri til að búa til sinn eigin pakka með hliðsjón af áhugamálum. Skólinn mun ávallt aðstoða nemendur við að finna afþreyingu við sitt hæfi og útvega hópafslætti eftir atvikum. Al Andalus Spænskuskóli reynir einnig að vera vakandi fyrir mismunandi menningartengdum atburðum í Tarifa og nágrannaborgum eins og t.d kvikmyndahátíðum, tónleikum, leiksýningum, myndlistarsýningum, fyrirlestrum og helstu “festivals.”
Á vegum skólans eru farnar menningartengdar dags- og helgarferðir til bæja/borga innan Andalúsíu eins og t.d. Sevilla, Córdoba og hvítu þorpanna (Los pueblos blancos).