Al Andalus Spænskuskóli býður uppá skoðunarferðir og mikla starfsemi fyrir utan skólann. Að kynnast landi og þjóð er mikilvægur þáttur í því að læra tungumál.  Við leggjum því mikið upp úr félagslega þætti kennslunnar. Til að ná því takmarki  bjóðum við upp á  menningartengda afþreyingu og kynnisferðir þar sem við notum létt og frumlegt kennsluefni til að veita nemandanum meiri innsýn í spænskan menningarheim, komast í kynni við heimamenn  og gefa honum tækifæri til að spreyta sig á því  sem hann lærir í kennslustund. Cádiz, Sevilla, Granada , Malaga og Córdoba eru þær borgir sem njóta mestrar hylli meðal nemanda. Áður en lagt er upp í kynnisferðir undirbýr Al Andalus nemendur sína með skemmtilegu og fræðilegu efni um viðkomandi borg. Auk þess að heimsækja sögulega staði og mikilvægustu hverfi borganna, fær nemandinn líka að kynnast  spænskri martargerð og flestum þeim viðburðum sem eiga sér stað á svæðinu á hverjum tíma. Al Andalus reynir alltaf að vera vakandi fyrir mismunandi menningartengdum atburðum í Tarifa og nágrannaborgum eins og t.d kvikmyndahátíðum, tónleikum, leiksýningum, myndlistarsýningum, fyrirlestrum  og helstu “festivals”. Spænskuskóli Örnu, Al Andalus sér um að viðhalda lista yfir slíka atburði svo að nemendur skólans séu upplýstir  um það sem er á boðstólnum hverju sinni.

Andalúsía er margrómuð fyrir mikla nátturufegurð, fallegar sögulegar borgir og mannvirki  og hin vinalegu "pueblos blancos", þ.e. hvítu bæi, sem einkennast af hvítmáluðum húsum og þröngum strætum. Margt er  í boði enda margt að sjá en aðeins verða farnar ferðir ef að nægjanleg þátttaka næst.

Sevilla
er höfuðborg Andalúsíu og ein fegursta, elsta og merkasta menningarborg Spánar. Sevilla sem er sögusvið óperunnar um Carmen, er ómissandi hlekkur í menningu og sögu Spánar. Þar er að finna margar af frægustu byggingum landsins eins og dómkirkjuna í Sevilla, La Giralda, sem er  þriðja stærsta guðshús í heimi, en Almohad moskan sem er elsti hluti hennar var byggð á 13. öld. Einnig má nefna Gullna turninn, Arabahöllina, Cartuja-klaustrið, og nautaatshringinn Maestranza auk bygginga sem reistar voru í tilefni heimssýningarinnar 1929. Auk gullfallegra menningarverðmæta, býr Sevilla líka yfir litríku og heillandi mannlífi, úrvali verslana, frábærum veitingastöðum og fjölbreyttu menningarlífi. Elsta hverfi Sevilla, Santa Cruz, er frá tímum Mára og ber það vissulega með sér.  Þar eru þröngar og skuggsælar göngugötur, lítil torg og kaffihús.  Triana-hverfið handan árinnar Guadalquivir, er einnig fjölsótt hverfi með fjölmörgum veitingastöðum þar sem tilvalið er að njóta spænskar matargerðar og fylgjast með hinu heillandi mannlífi Sevillaborgar.

Granada er  sennilega ein þekktasta og mest  heimsótta borg Spánar. Granada var höfuðborg Alandalus, eða Anadalúsíu á tímum mára, en arabísku kalífarnir réðu yfir Granada í næstum 800 ár eða allt fram á 15.öld. Arabarnir voru rómaðir fyrir mikla snilli í byggingarlist eins og höllin la Alambra, helsta aðdráttarafl ferðamanna,  ber vitni um. Garðar hallarinnar eru brýddir fjölmörgum gosbrunnum, trjágöngum og vel skreyttum “patios” og minna helst á ævintýri þúsund og einnar nætur. Granada, sem er á heimsminjaskrá Unesco, er umkringd stórkostlegum fjallgarði, la Sierra Nevada, og er að margra áliti einn af fallegustu stöðum heims. Í fjallinu Sacromonte er að finna hella þar sem sígaunar bjuggu  öldum saman, en í þessum hellum eru í dag haldnar flamenco sýningar.

Cordóba er ein elsta borg Evrópu.  Þar er m.a. að  finna moskunu -Aljama- frá 8. öld sem er ein af merkustu byggingum mára í hinum vestræna heimi.

Hvítu bæirnir;  Arcos de la Frontera, Jerez de la Frontera, Cádiz.  Andalusía er þekkt fyrir  „los pueblos blancos“ þ.e. borgir og bæi með hvítmáluðum húsum, þröngum götum, blómum í gluggum og þá sérstaklega innan gömlu borgarmúranna. Áhrif máranna í gegnum aldirnir eru greinileg og þeirra gætir bæði í byggingarstíl, matargerð og einnig í karakter andalúsískra. Arcos de la Frontera er einn af þessum bæjum, ótrúlega skemmtilegur bær sem er byggður  á brattri hæð, þar sem kastalaveggirnir og þverhnípið verða að einu og ná allt niður í  Guadalete dalinn. Cádiz er ekki aðeins ein af elstu borgum Vestur- Evrópu, hún er einnig syðsta borg álfunnar. Cádiz var stofnuð af Föníkíumönnum árið 1100 fyrir krist. Borgin var hertekin af Karþagómönnum, rómverjum, visigoðum og múslimum og lék lykilhlutverk í uppgötvun  Amériku, en þaðan fóru skip Cólumbusar og annarra nýlendufara. Hún lék líka stórt hlutverk sem tengiliður milli Evrópu og nýja heimsins, enda eru margir sem benda á að Cádiz og la Habana á Cúbu séu um margt líkar. Jerez de la Frontera er sennilega þekktust fyrir brugghús, vínkjallara og flamenco.  Þaðan er hið víðkunna Sherry eða Jerez og hinn heimsfrægi konunglegi hestaskóli Andalúsíu.  Í honum eru haldnar stórkostlegar sýningar þar sem hestarnir eru í aðalhlutverki og leika listir sínar og hreyfa sig í takt við flamenco tónlistina. Hestahátíðin, sem haldin er í lok april og byrjun mai, er einstakur viðburður sem enginn ætti að missa af.

Tanger í Marokko er í aðeins 14 kílómetra fjarlægð frá Tarifa og er oft nefnd "Hliðið að Afríku". Tanger er hvorki  evrópsk né afrísk eða marokkósk borg; hún er miklu fremur kryddlegin blanda af þessum þremur menningarheimum og það er einmitt það sem gerir borgina svo áhugarverða.  Gullöld Tanger var í kringum 1950, þó hún hafi fyrir þann tíma verið samkomustaður þekktra persóna; rithöfunda, listamanna og stjórnmálamanna.  Þar voru Winston Churhill, Oscar Wild og Cecil Beaton svo einhverjir séu nefndir. Dæmi um áhugaverði staði sem vert er að heimsækja í Tanger eru "el zoco" eða markaðurinn í hjarta borgarinnar og "la Kasbah" sem er svæði innan gömlu borgarmúranna.  Innan múranna er stór garður sem leiðir til  "Makhezen Dar el",  höll Súltánsins frá 18.öld, sem í dag hefur verið gerð að safni. Höllin er prýdd fallegum útskornum timburloftum, marmaralögðum húsagörðum og víðfemum listigörðum og er reist á einum hæsta punkti Tanger, þaðan sem óheft útsýni er yfir Gibraltarsund, allt til suðurstrandar Spánar.

Skrifstofutími

Skrifstofa skólans er opin virka daga frá 10-14 á spænskum tíma.
Hafðu samband við okkur á Skype:

My status

Heimilisfang

San Rosendo, nr. 12, Tarifa, 11380 Cádiz, Spain.
Sími: 0034 - 956 62 75 48, 
info@alandalustarifa.com

Sitemap
Disclaimer