Home

Spænskuskólinn Al Andalus í bænum Tarífa á Spáni er staðsettur í gamla hluta bæjarins, örstutt frá ströndinni og innan borgarmúranna sem byggðir voru á tíundu öld af aröbum sem þá réðu ríkjum í Andalúsíu. Skólinn er í notalegu húsi þar sem kennslustofur eru á jarðhæð, en á annarri hæð eru rúmgóð herbergi þar sem hægt er að hýsa nemendur. Efst er þakverönd með ótrúlegu útsýni yfir bæinn, Gíbraltarsund með allri sinni skipaumferð og allt til norðurstrandar Afríku. Á spænskunámkeiðinu er lögð áhersla á að hver nemandi fái að njóta sín til fullnustu, en því takmarki náum við með fáum nemendum í hverjum hópi og reyndum kennurum.

Auk herbergjanna fyrir ofan skólann er einnig boðið uppá gistingu hjá spænskum fjölskyldum, í íbúðum víðsvegar um bæinn og á gistiheimilum. Unnendur strandlífs geta leigt sér lítil fjögurra manna strandhús sem eru á vel útbúnum tjaldstæðum við ströndina í næsta nágrenni við Tarifa. Þaðan ganga strætisvagnar á klukkutíma fresti. Hafa ber í huga að í júlí og ágúst er mjög erfitt að finna gistirými og því er nauðsynlegt að panta gistingu með góðum fyrirvara.

Skólinn er opinn frá 1.april til lok októbers og spænskunámskeiðin eru allt frá viku uppí 6 mánuði og skiptast upp í grunnstig, miðstig og efsta stig fyrir lengra komna. Hópkennslan fer fram á morgnana og nemendur eiga því frí seinni part dags til að sinna áhugamálum sínum, enda mikið um að vera á svæðinu. Spænskukennslan miðast við fjóra tíma á dag, frá kl. 9-13.30 alla virka daga en einnig er boðið upp á “intensive” kúrsa fyrir þá sem vilja skerpa á náminu. Þá er boðið uppá einkakennslu.

Við hjá Al Andalus bjóðum einnig upp á samsett námskeið þar sem nemandinn getur valið á milli nokkurra námskeiða meðfram spænskunáminu. Þarna hefur hann tækifæri til að búa til sinn eigin pakka með hliðsjón af áhugamálum. Skólinn mun ávallt aðstoða nemendur við að finna afþreyingu við sitt hæfi og útvega hópafslætti eftir atvikum. Al Andalus Spænskuskóli reynir einnig að vera vakandi fyrir mismunandi menningartengdum atburðum í Tarifa og nágrannaborgum eins og t.d kvikmyndahátíðum, tónleikum, leiksýningum, myndlistarsýningum, fyrirlestrum og helstu “festivals.”

Á vegum skólans eru farnar menningartengdar dags- og helgarferðir til bæja/borga innan Andalúsíu eins og t.d. Sevilla, Córdoba og hvítu þorpanna (Los pueblos blancos).

Tracker = _gat._getTracker("UA-7287034-2"); pageTracker._trackPageview();